ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður

Síðast uppfært: 07.08.2025

Fyrir hvern er sjóðurinn?

ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er góður kostur fyrir þá sem vilja fjárfesta í erlendum hlutabréfum og vilja jafnframt mikla dreifingu á eignirnar sínar. Þar sem miklar sveiflur geta verið á gengi sjóðsins þá hentar hann best í lengri tíma fjárfestingar.

Markmið og fjárfestingarstefna

ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er sjóðasjóður sem fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum. Markmið hans er að skila fjárfestum langtímaávöxtun og áhættudreifingu. Þar sem sjóðurinn er gerður upp í íslenskum krónum þá hefur breyting á gengi krónunnar áhrif á sjóðinn. Styrkist krónan minnkar ávöxtun sem því nemur og eykst ef krónan veikist.

Verðbreyting (upphafsgildi = 100)

Eignasamsetning

Stærstu eignir

FjárfestingarstefnaStefnaEign
Erlendir verðbréfasjóðir og aðrir sjóðir um sameiginlega fjárfestingu 100% 89%
Reiðufé   11%

Stærstu útgefendur

Verðbreyting tímabila Frá áramótum 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður -2,3% 2,7% -8,9% 3,7%
Verðbreyting ára 2024 2023 2022 2021 2020
ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður 13,1% 18,1% -21,8% 13,0% 31,8%

Grunnupplýsingar

Stærð (m.kr.) 2.067,6
Sjóðstjóri Andrés Ívarsson / Helga Björg Ingvadóttir
Stofnár 2005
Umsýsluþóknun á ári 1.5%
Árangursþóknun Á ekki við
Árangursviðmið Á ekki við
Rekstraraðili ÍV sjóðir hf
Vörsluaðili Íslensk verðbréf hf

Viðskipti

Lágmarkskaup 3.000
Þóknun við kaup 2%
Þóknun við sölu 0%
Afgreiðslutími 10:00 til 14:00
Uppgjörstími 3 viðskiptadagar (T+3)
Áskriftarmöguleikar Nei

Tölfræðilegar upplýsingar

Gengi sjóðs 07.08.2025 640.3869

Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?

Hægt er að fjárfesta í ÍV Alþjóðlegum hlutabréfasjóði með því að hafa samband við ráðgjafa Íslenskra verðbréfa í síma 460 470 0. Einnig má fjárfesta í sjóðnum á heimasíðu Íslenskra verðbréfa www.iv.is. Athuga að vegna reglna sem hefta fjármagnsflæði frá landinu er fjárfesting í sjóðnum háð takmörkunum og skilyrðum. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Íslenskr a verðbréfa hf. í síma 460 4700 eða í tölvupósti.

Skattlagning

Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar verðbréfasjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa s kil á fjármagnstekjuskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignarhlutdeild. Söluhagnaður ber 20% fjármagnstekjuskatt. 

Fyrirvari

ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 128/2011 verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Íslenskra verðbréfa, www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.