Hreinn Þór Hauksson

Hreinn Þór Hauksson
Hreinn Þór Hauksson

Hreinn Þór er framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf.

Hreinn Þór er fæddur árið 1981. Hann lauka stúdentssprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 2001, B.Sc prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2005 og M.Sc prófi í frumkvöðlafræði og nýsköpun frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 2012. Hreinn Þór hefur einnig lokið löggildingarnámi í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í Reykjavík.

Hreinn Þór starfaði hjá Íslandsbanka og Glitni á árunum 2005 – 2011, lengst af innan Markaðsviðskipta og fjárstýringar með áherslu á rekstur og innri virkni deildarinnar og aðkomu að verðbréfamiðlun, gjaldeyrismiðlun, afleiðum og sérhæfðum verkefnum. Seinna kom hann að lánamálum fyrirtækja og eignastýringu með áherslu á atvinnusvæði Akureyrar. Frá ágúst 2012 starfaði Hreinn Þór að svæðisbundinni efnahags – og atvinnuþróun sem verkefnastjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Hreinn Þór starfaði hjá ÍV sjóðum hf., dótturfélags Íslenskra verðbréfa  frá 2014 - 2017 sem sjóðstjóri Veðskuldabréfasjóðs ÍV. Hann starfaði hjá Íslenskum verðbréfum í sérhæfðum fjárfestingum frá upphafi árs 2017 þar til hann tók við starfi framkvæmdastjóra ÍV sjóða.